mánudagur, júní 16, 2008

16. júní 2008

Jæja þá er það hátíð á morgun.
Þeir viðast hafa lært af mistökum sínum, vonandi fær hann að lifa - hinn ný-fundni hvítabjörn.
Peningasmeningamálin eins.

Dk.
Hryðjuverk yfirvofandi og góða veðrið er farið.
Reyndar náðust samningar í kjaramálunum í gærkvöldi, það er þá vonandi að sambýlingar mínir verði ekki sendir heim af fæðingadeildinni fjórum tímum eftir fæðingu.

Allir virðast tala um fótbolta.

Ég ætla að halda uppá morgundaginn með því að klára svarta ópalið sem Ingibjörg systir mín, meistaragráðumastersmeistarinn mikli,gaf mér þegar þau komu í síðasta mánuði.

Hér erum við:



miðvikudagur, júní 04, 2008

Það er enn sól í dk









Það er soðið loft í herberginu mínu, en átján sun lollyar í frystinum