fimmtudagur, apríl 10, 2008

Höllu langaði í skó












En Jimmy Choo er frekar dýr. Svo Halla keypti sér bara ódýra skó. Hún vonar að skólöngunin sé farin.









Svona bara svarta og......... fabjúlus eitís sandala í H&M.
Hva, krónan er komin niður í 15, 393.

Halla er hætt að tala um sjálfa sig í þriðju persónu það er jú, bara kjánalegt.

9 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Veiiiii :)
Halla farin að blogga aftur!

LáraM.

10:59 e.h.  
Blogger Ingibjorg said...

Ohh, Isys langar í H&M...og í skó... Kannski kemur hún bara í heimsókn;)

3:37 e.h.  
Blogger Ingibjorg said...

Fannst við hæfi að skilja eftir athugasemd í þriðju;)

3:37 e.h.  
Blogger Solla Gella said...

Sólveigu finnst einmitt töff að tala um sig í þriðju persónu og finnst að fólk ætti almennt að gera meira af því... Það að tala um sig í fyrstu persónu finnst henni benda til þess að fólk sé sjálfhvert og egósentrískt.
Sólveigu finnst skórnir annars voða flottir og verður að viðurkenna að hún stríðir einmitt við sömu löngun í augnablikinu en ætlar að bíða eftir sumrinu sem færir henni peninga.
Sólveig er auk þess rosa glöð yfir að Halla sé aftur farin að blogga...
;)

3:36 e.h.  
Blogger Drekafluga said...

Vá. Mig langar í Jimmy Choo, þeir eru það flottir.

10:37 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

halla dugleg

ég er egósentrísk og sjálfhverf og þessvegna langar MIG líka núna mest í heimi í Jimmy Choo's!! úff, ég missti andann

12:13 e.h.  
Blogger Solla Gella said...

Sólveig bíður spennt eftir næstu færslu, enda próf á mánudaginn svo Sólveig hefur ekkert betra að gera en þvælast um netheima :)

5:07 e.h.  
Blogger Dilja said...

Veii blogg

10:38 f.h.  
Blogger Halla Brynhildur said...

Halla hefur ákveðið að það sem hana hefur vantað lengi er að vera sjálfhverfari og egósentrískari. Hún ætlar því að tala oftar um sig í 3. persónu.
En hana langar ægilega mikið að sjá Drekafluguna í háum hælum, hahaha.

10:43 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home